Vikulegir viðtalstímar þingmanna og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Bryndís Haraldsdóttir alþingismaður og Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi bjóða upp á viðtalstíma á föstudaginn, 12. október, á milli kl. 12:00 og 13:00. Hver viðtalstími getur verið allt að 15 mínútur að lengd. Vakin er athygli á því að hægt er að óska eftir því að viðtalið fari fram í gegnum síma.
Þingmenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða á næstu vikum með viðtalstíma á skrifstofu flokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Viðtalstímarnir munu fara fram á föstudögum frá kl. 12:00 – 13:00. Upplýsingar um hvaða fulltrúar verða til viðtals hverju sinni, verða auglýstar nánar á heimasíðu og samfélagssíðum flokksins.
Bóka verður tíma fyrirfram í s. 515-1700 eða með tölvupósti á skuli@xd.is .
Kveðja
Sjálfstæðisflokkurinn