Opinn fundur um borgarmálin – Félag sjálfstæðismanna í Bakka- og Stekkjahverfi

Félag sjálfstæðismanna í Bakka- og Stekkjahverfi boðar til opins fundar um borgarmálin í félagsheimili Sjálfstæðismanna í Breiðholti, Álfabakka 14a (Mjódd), fimmtudaginn 24. nóvember nk. kl. 17:00.

Dagskrá:

  1. Kosning fundarstjóra.
  2. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík opnar fundinn.
  3. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sitja fyrir svörum.

Allir velkomnir.

Stjórn Félags sjálfstæðismanna í Bakka- og Stekkjahverfi