Nú fer óðum að styttast í hátíðirnar og af því tilefni býður Vörður–fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík til jólagleði næsta fimmtudag, 13. desember, í Valhöll frá klukkan 18:00 til 20:00.
Eyþór L. Arnalds, oddviti borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins, verður heiðursgestur.
Bjarni Karlsson, sjálfstætt starfandi prestur, flytur jólahugvekju.
Ásdís Halla Bragadóttir les upp úr nýjustu bókinni sinni, Hornauga.
Léttar veitingar og fljótandi veigar í boði.
Allir velkomnir.
Facebook-viðburð jólagleðinnar má finna hér.