Aðalfundur Norðvesturkjördæmis

Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fer fram laugardaginn 18. mars nk. kl. 12:30 í Hjálmakletti í Borgarnesi.

Dagskrá er sem hér segir:

1. Skýrsla fráfarandi stjórnar og reikningar kjördæmisráðsins fyrir árið 2022.
2. Lagabreytingar
3. Ákvörðun árgjalds
4. Stjórnarkjör.
a) Kosning formanns.
b) Kosning 7 stjórnarmanna.
c) Kosning 8 varamanna.
5. Kosning kjörnefndar.
6. Kosning fulltrúa í flokksráð skv. 12 grein skipulagsreglna Sjálfstæðisflokksins.
7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
8. Kosning í uppstillingarnefnd.
9. Kosning fulltrúa í miðstjórn skv. 23. grein skipulagsreglna Sjálfstæðisflokksins.
10. Ávörp alþingismanna og almennar stjórnmálaumræður.
11. Önnur mál.

Með bestu kveðju.

F.h. stjórnar Kjördæmisráðs í Norðvesturkjördæmi
Sigríður Ólafsdóttir, formaður