Aðalfundur Félags sjálfstæðismanna í Hóla- og Fellahverfi

Aðalfundur Félags sjálfstæðismanna í Hóla- og Fellahverfi fer fram miðvikudaginn 11. mars næstkomandi klukkan 18:00 í Sjálfstæðisheimilinu við Álfabakka 14A (Mjódd).

Framboðum til stjórnar skal skila á netfangið ingamaria1991@gmail.com fyrir klukkan 16:00 sunnudaginn 8. mars, þremur dögum fyrir aðalfund.

Á dagskrá aðalfundar skal vera samkvæmt ákvæði um aðalfund:

Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
Reikningsskil.
Skýrslur nefnda.
Kjör stjórnar, varastjórnar og skoðunarmanna reikningsskila.
Kjör fulltrúa í Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
Tillögur um lagabreytingar.
Önnur mál.