Vorboðinn heimsækir Alþingi

Birgir Ármannsson formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og Vilhjálmur Bjarnason varaþingmaður munu taka á móti hafnfirskum sjálfstæðiskonum í Alþingishúsinu og leiða þær í gegnum húsið föstudaginn 21. febrúar nk. kl. 17:00.

Vilhjálmur fer yfir söguna og ýmsan skemmtilegan fróðleik eins og honum einum er lagið.

Skráning fer fram á facebook-síðu félagsins hér með því að melda sig „going“. Fjöldi takmarkast við 30 konur.

Hlökkum til að sjá ykkur allar, hressar og kátar 21. febrúar