Viðtalstímar kjörinna fulltrúa – Njáll Trausti Friðbertsson og Ragnhildur Alda M. Vilhjálmsdóttir

Vikulegir viðtalstímar þingmanna og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður og Ragnhildur Alda M. Vilhjálmsdóttir varaborgarfulltrúi bjóða upp á viðtalstíma á föstudaginn, 28. september, á milli 12:00 og 13:00. Hver viðtalstími getur verið allt að 15 mínútur að lengd.

Þingmenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða á næstu vikum með viðtalstíma á skrifstofu flokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Viðtalstímarnir munu fara fram á föstudögum frá kl. 12:00 – 13:00. Upplýsingar um hvaða fulltrúar verða til viðtals hverju sinni, verða auglýstar nánar á heimasíðu og samfélagssíðum flokksins.

Bóka verður tíma fyrirfram í s. 515-1700 eða með tölvupósti á skuli@xd.is .

Kveðja

Sjálfstæðisflokkurinn