Viðtalstímar – Brynjar Níelsson og Örn Þórðarson

Vikulegir viðtalstímar þingmanna og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Brynjar Níelsson alþingismaður og Örn Þórðarson borgarfulltrúi bjóða upp á viðtalstíma á morgun, föstudaginn 12. apríl, á milli 12:00 og 13:00. Hver viðtalstími getur verið allt að 15 mínútur að lengd. Vakin er athygli á því að hægt er að óska eftir því að viðtalið fari fram í gegnum síma.

Þingmenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða, frá og með föstudeginum 12. apríl, með opna viðtalstíma á skrifstofu flokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Viðtalstímarnir munu fara fram á föstudögum frá kl. 12:00 – 13:00. Upplýsingar um hvaða fulltrúar verða til viðtals hverju sinni, verða auglýstar nánar á heimasíðu og samfélagssíðum flokksins.

Bóka verður tíma fyrirfram í s. 515-1700 eða með tölvupósti á skuli@xd.is .