Þórdís Kolbrún og Vilhjálmur í Skagafirði á sunnudag

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og
Vilhjálmur Árnason alþingismaður, verða gestir okkar í morgunverðarkaffi hjá sjálfstæðismönnum í Skagafirði sunnudaginn 18. nóvember nk.

Þórdís Kolbrún mun þar ræða þau mál sem heyra undir hennar ráðuneyti og ríkisstjórnarsamstarfið almennt. Vilhjálmur mun flytja erindi um samgöngumál undir yfirskriftinni „Það er til önnur leið“.

Fundurinn verður haldinn í sal heimavistar Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra (FNV) og hefst kl. 11.

Kaffi og bakkelsi á staðnum – Allir eru velkomnir!