Opinn fundur með Brynjari Níelssyni

Opinn fundur verður í kvöld þriðjudaginn 27. ágúst kl. 17:30 í félagsheimili sjálfstæðismanna í Hraunbæ 102B (við hliðina á Skalla).

Gestur fundarins er Brynjar Níelsson alþingismaður og fer hann yfir stjórnmálaviðhorfið, m.a. þriðja orkupakkann.

Fundarstjóri er Björn Gíslason borgarfulltrúi.

Allir velkomnir!

Stjórn Félags sjálfstæðismanna í Árbæjar- og Seláshverfi, Ártúns- og Norðlingaholti.