Miðstjórnarkjör Varðar

Ágætu félagar í Verði.

Við minnum á að kosning vegna miðstjórnarkjörs Varðar er hafin og fer fram í dag og á morgun, þriðjudaginn 4. desember og miðvikudaginn 5. desember 2018. Kosið verður í Valhöll báða dagana, fyrri daginn frá kl. 9.00 til 17.00 og síðari daginn frá kl. 9.00 til 18.00.

Allir félagar fulltrúaráðsins hafa kosningarétt. Þar sem fulltrúaráðið í Reykjavík nær yfir bæði Reykjavíkurkjördæmin munu allir meðlimir fulltrúaráðsins kjósa fulltrúa kjördæmanna til miðstjórnar. Kosningin verður skrifleg og skal kjósandi kjósa sex einstaklinga, hvorki fleiri né færri. Kjörseðill þar sem merkt er við færri en sex eða fleiri en sex nöfn, telst ógildur.

Eftirfarandi aðilar eru í framboði:

Sigurður Haukdal Styrmisson, dagskrárgerðarmaður

Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis

Steinunn Anna Hannesdóttir, verkfræðingur

Þorvaldur Tolli Ásgeirsson, þjónustustjóri

Ásta V. Roth, flugfreyja

Elsa Björk Valsdóttir, skurðlæknir

Eva Dögg M. Sigurgeirsdóttir, framkvæmdastjóri

Gísli Kr. Björnsson, lögmaður

Guðmundur Gunnar Þórðarson, húsasmíðameistari

Hallur Hallsson, framkvæmdastjóri

Magnús Þór Gylfason, viðskiptafræðingur

Pjetur Stefánsson, mynd­listarmaður

Reynir Vignir, viðskiptafræðingur

Sex frambjóðendur sem ekki hljóta kosningu sem aðalmenn verða varamenn í miðstjórn í þeirri röð sem þeir hljóta kosningu.

Kær kveðja,
Kjörstjórn Varðar