Jólagleði Varðar

Jólagleði Varðar

Nú fer óðum að styttast í hátíðirnar og af því tilefni býður Vörður–fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík til jólagleði næsta fimmtudag, 14. desember, í Valhöll frá klukkan 17 til 19.

Hjálmar Jónsson, fyrrverandi alþingismaður og dómkirkjuprestur, flytur jólahugvekju.

Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur les upp úr nýjustu bókinni sinni, Gatið.

Léttar veitingar og fljótandi veigar í boði.

Allir velkomnir.