Haraldur Benediktsson alþingismaður á streymisfundi

Haraldur Benediktsson alþingismaður Norðvesturkjördæmis og varaformaður fjárlaganefndar verður í beinni á næsta laugardagsfundi Sjálfstæðisfélags Kópavogs.

Mikið mæðir á fjárlaganefnd þessa dagana og mun Haraldur fara yfir málin, ásamt öðrum aðkallandi verkefnum.

Fundinum verður streymt á Facebook laugardaginn 17. október kl. 10:00, sjá nánar hér.

Við hvetjum félagsmenn til að senda inn fyrirspurnir fyrir fundinn á netfangið xdkop@xdkop.is, einnig verður tekið við fyrirspurnum meðan á fundinum stendur.

Hittumst á netinu.

Stjórn Sjálfstæðisfélags Kópavogs