Guðlaugur Þór á fundi í Hafnarfirði

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, verður gestur sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði næsta laugardag, 26. janúar, kl. 11 að Norðurbakka 1a. 

Erindi Guðlaugs ber heitið: „Hagsmunadrifin utanríkisstefna: breytingar og þróun í utanríkisþjónustunni síðustu 2 ár.”

Heitt á könnunni og allir velkomnir.

Sjálfstæðisfélögin í Hafnarfirði munu standa fyrir laugardagskaffi fram á vor og fá til sín góða gesti. Gestir vikunnar verða kynntir á hamarinn.is og á facebook.com/xdhafnarfirdi

Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði.