Gengið um Reykjavík

Þann 18. ágúst nk. mun sjálfstæðisfólk ganga um Reykjavík í eina klukkustund milli kl. 12:00 og 13:00 í tilefni af 90 ára afmæli Sjálfstæðisflokksins. Merktir vatnsbrúsar frá flokknum verða í boði á meðan birgðir endast.

Gengið verður frá Rafstöðvarheimilinu í Elliðaárdal í gegnum Elliðaárdalinn og Laugardalinn og endað í Valhöll (Háaleitisbraut 1). Lagt verður af stað frá Rafstöðvarheimilinu kl. 12:00 og er fólk því hvatt til að mæta þangað eigi síðar en kl. 11:50.

Rúta leggur af stað frá Valhöll fyrir þá sem vilja fremur leggja bílum sínum þar kl. 11:45.

Um er að ræða létta og þægilega göngu sem hentar fólki á öllum aldri, þannig að öll fjölskyldan getur tekið þátt. Að göngu lokinni mun svo Vörður, í samstarfi við hverfafélögin í Reykjavík, halda grillveislu fyrir utan Valhöll.

Hægt er að nálgast nákvæmt kort af göngunni í Google Maps – hér.

Allir velkomnir. Sjáumst sem flest þann 18. ágúst.

Vörður – fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.