Fundur ráðherra í Vesturbyggð um veiðigjald og stöðu sjávarútvegs

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra boðar til fundar í Vesturbyggð fimmtudaginn 11. október kl. 12:00. Fundurinn fer fram í félagsheimilinu á Patreksfirði.

Á fundinum mun ráðherra ræða  nýtt frumvarp til laga um veiðigjald og stöðu sjávarútvegsins almennt.

Fundurinn er öllum opinn.