Fundur ráðherra í Vestmannaeyjum um veiðigjald og stöðu sjávarútvegs

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra boðar til fundar í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 17. október kl. 11:30. Fundurinn fer fram í Akóges.

Á fundinum mun ráðherra ræða nýtt frumvarp til laga um veiðigjald og stöðu sjávarútvegsins almennt.

Fundurinn er öllum opinn.