Fundur ráðherra í Grindavík um veiðigjald og stöðu sjávarútvegs

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra boðar til fundar í Grindavík þriðjudaginn 23. október kl. 20:00. Fundurinn fer fram í Salthúsinu.

Á fundinum mun ráðherra ræða  nýtt frumvarp til laga um veiðigjald og stöðu sjávarútvegsins almennt.

Fundurinn er öllum opinn.