Fundur ráðherra á Hellissandi um veiðigjald og stöðu sjávarútvegs

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra boðar til fundar á Hellissandi fimmtudaginn 11. október kl. 19:30. Fundurinn fer fram í félagsheimilinu Röstinni.

Á fundinum mun ráðherra ræða  nýtt frumvarp til laga um veiðigjald og stöðu sjávarútvegsins almennt.

Fundurinn er öllum opinn.