Bæjarmálafundur í Kaupangi á Akureyri

Bæjarmálafundur um málefni Akureyrarbæjar fer fram í Kaupangimánudaginn 10. desember kl. 17.30 þar sem málefni bæjarstjórnarfundar 11. desember verða rædd.

Á dagskrá bæjarmálafundarins verða eftirtalin mál til umræðu:

  • Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2019 – 2022 seinni umræða – Framkvæmdaáætlun – Gjaldskrár
  • Snjómokstur í bænum
  • Skýrsla um innanlandsflug – niðurgreiðslur á flugi og breytt skipan á stöðu flugvallanna á Akureyri, Egilsstöðum og Reykjavík
  • Skipulagsmál
  • Önnur mál

Fundarstjóri verður Gunnar Gíslason.

Sjálfstæðismenn hvattir til að mæta og taka þátt, þannig höfum við áhrif.