Aðalfundur Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík

Aðalfundur Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verður haldinn fimmtudaginn 18. mars n.k. kl. 11:00 í Valhöll.

Dagskrá fundarins:

  1. Kl. 11:00  – Setning fundarins á fjarfundarforritinu Zoom.
  2. Kl. 11:00 – 20:00 – Skriflegar kosningar til stjórnar og formanns.
  3. Kl. 21:00 – Ávarp: Jón Karl Ólafsson, formaður Varðar. Tilkynnt um úrslit kosninga.
  4. Venjuleg aðalfundarstörf.
  5. Önnur mál

Skriflegum framboðum til stjórnar skal skilað til framkvæmdastjóra Varðar á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, eða með tölvupósti á netfangið skuli@xd.is, fyrir kl. 16:00, mánudaginn 15. mars, þremur dögum fyrir aðalfund.

ATH! Vegna sóttvarna – Ef til kosningar kemur á aðalfundinum, til stjórnar eða formanns, þá mun kosningin standa yfir á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1, frá kl. 11:00 til 20:00 fimmtudaginn 18. mars.

Kjörgengir eru allir meðlimir fulltrúaráðsins.

Athugið að seturétt á fundinum hafa eingöngu fulltrúar í fulltrúaráðinu.

Stjórnin.