Aðalfundur kjördæmisráðs Suðvesturkjördæmis

Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi 2021 fer fram laugardaginn 24. april nk. kl. 10:00. Fundurinn fer fram á netinu og verður slóð til að komast inn á fundinn send kjörnum fulltrúum í ráðinu daginn fyrir fund.

Dagskrá:

  1. Setning fundar og val á fundarstjóra og ritara.
  2. Skýrsla fráfarandi stjórnar.
  3. Reikningar kjördæmisráðsins 2019 og 2020.
  4. Lagabreytingar.
  5. Ákvörðun árgjalds.
  6. Stjórnarkjör.
    1. Kosning formanns.
    2. Kosning 6 stjórnarmanna.
    3. Kosning 7 varamanna í stjórn.
  7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
  8. Kosning 16 fulltrúa í flokksráð og 16 varafulltrúa skv. 13. gr. skipulagsreglna.
  9. Kosning 7 fulltrúa í kjörnefnd og 3 varafulltrúa skv. 9. gr. laga kjördæmisráðsins.
  10. Kosning þriggja fulltrúa í miðstjórn og þriggja til vara skv. 23. grein skipulagsreglna.
  11. Ávarp Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins.
  12. Almennar stjórnmálaumræður.
  13. Önnur mál.