Reykjavíkurþing 2024

Vörður, fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, boðar til Reykjavíkurþings 2024 í Valhöll dagana 8.-9. mars nk.
Sem venja er fer fram málefnavinna auk þess sem að erindi í formi örfyrirlestra og pallborðsumræðna verða í forgrunni sem og umræður um stjórnmálaástandið. Á stokk stíga kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bland við fagfólk og sérfræðinga í þeim málefnum sem rætt verður um. Fyrst og fremst munum við Sjálfstæðismenn í Reykjavík gera okkur glaðan dag og snúa bökum saman.

Föstudagur – 8. mars 16:00 – 18:30

16:00-17:00 Skráning og afhending fundargagna

17:00-18:30 Móttaka í boði borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins

  • Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og Hildur Björnsdóttir, oddviti borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins flytja ávörp.

Laugardagur – 9. mars 10:00 – 17:15

9:30-10:00 Skráning og afhending fundargagna

10:00-10:05 Setning Reykjavíkurþings

10:05-11:10 Framtíðarsýn í samgöngumálum Reykjavíkur

  • Egill Þór Jónsson, formaður Varðar, kynnir starf vinnuhóps á vegum stjórnar Varðar varðandi hugmyndir um jarðgangnagerð á höfuðborgarsvæðinu.
  • Eru jarðgöng raunhæfur kostur? – Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur.
  • Jarðfræði höfuðborgarsvæðisins – Matthías Loftsson, jarðgagnaverkfræðingur.
  • Pallborðsumræður – Vilhjálmur Egilsson, Matthías Loftsson, Rósa Dögg Þorsteinsdóttir, arkitekt og Leifur Skúlason Kaldal, varaformaður Varðar. Steinar Ingi Kolbeins, aðstoðarmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og 1. varaformaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, stýrir umræðum.

11:10-12:00 Örfyrirlestrar

  • Borgin við sundin
  • Fjármál Reykjavíkurborgar
  • Hvað er lífsgæðakjarni?

12:00-13:00 Hádegishlé (súpa og brauð eru innifalin í þinggjaldi)

13:00-15:00 Málefnastarf – unnið með drög að stjórnmálaályktun Reykjavíkurþings

15:00-15:30 Kaffihlé

15:30-16:15 Stjórnmálaástandið

Myndbandsávarp Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Hildur Björnsdóttir, oddviti borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins. Júlíus Viggó Ólafsson, formaður Heimdallar, stýrir umræðum.

16:15-17:00 Afgreiðsla stjórnmálaályktunar

17:00-17:15 Egill Þór Jónsson, formaður Varðar, slítur Reykjavíkurþingi

SKRÁNING Á REYKJAVÍKURÞING FYRIR ÞÁ SEM VILJA GREIÐA ÞINGGJALDIÐ STRAX

SKRÁNING Á REYKJAVÍKURÞING FYRIR ÞÁ SEM VILJA GREIÐA ÞINGGJALD Á STAÐNUM

Fundarsköp Reykjavíkurþings
Drög að stjórnmálaályktun Reykjavíkurþings 2024

Í málefna- og samræmingarnefnd Reykjavíkurþings sitja:

  • Egill Þór Jónsson, formaður
  • Andrea Sigurðardóttir
  • Bessí Jóhannsdóttir
  • Brynhildur Glúmsdóttir
  • Einar Hjálmar Jónsson
  • Janus Arn Guðmundsson
  • Jórunn Pála Jónasdóttir
  • Júlíus Viggó Ólafsson
Taktu daginn frá!