Landsfundur 2021 – Lýðræðisveislan heldur áfram

Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ákvað á fundi sínum í dag að 44. landsfundur Sjálfstæðisflokksins, sem fresta hefur þurft vegna heimsfaraldursins, fari fram í Laugardalshöll dagana 27. – 29. ágúst nk.

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er ein stærsta lýðræðissamkoma Íslands, en þar eiga vel á annað þúsund fulltrúar seturétt hverju sinni. Á fundinum er mörkuð heildarstefna flokkins í landsmálum, æðsta forysta flokksins er kosin, auk þess sem fundurinn kýs stjórnir málefnanefnda sem halda utan um málefnastarf flokksins á milli landsfunda.

Í hugum sjálfstæðismanna er landsfundur mikil hátíðarsamkoma. Þar hittast sjálfstæðismenn af öllu landinu, kynnast og styrkja böndin.

Hvert félag innan flokksins kýs fulltrúa til setu á fundinum, auk landssambanda og fulltrúaráða. Þá eru flokksráðsmenn einnig sjálfkjörnir á landsfund. Kjörgengir á landsfund eru flokksbundnir Sjálfstæðismenn. Hafir þú áhuga á að taka þátt í landsfundi og móta stefnu flokksins getur þú óskað eftir seturétti á fundinn hér.

Ósk þín um setu á landsfundi verður send stjórn félags á félagssvæði þínu. Ekki er hægt að lofa fulltrúasæti, það fer eftir því hversu margir óska eftir þátttöku. Það er stjórn félagsins eða félagsfundur sem vinnur úr umsóknum.

Allar upplýsingar um fundinn verða birtar hér á xd.is