Reykjavíkurkjördæmi norður

Reykjavíkurkjördæmi norður nær yfir hálfa Reykjavík. Í kjördæminu eru 11 þingmenn, þar af 2 uppbótaþingmenn. Kjördæmamörk eru þannig: Frá vestri til austurs skiptir Hringbraut, Miklabraut, Ártúnsbrekka og Vesturlandsvegur kjördæmunum þar til komið er að punkti á móts við Sóltorg í Grafarholti. Grafarholtshverfi skiptist áfram milli suður- og norðurkjördæmis um Kristnibraut og Gvendargeisla.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk 7.353 atkvæði í alþingiskosningunum 2021 og er stærsti stjórnmálaflokkurinn í kjördæminu með 20,9% atkvæða og tvo þingmenn.

Þingmenn kjördæmisins: