Elliði Vignisson nýr bæjarstjóri í Ölfusi

Elliði Vignisson var í gærkvöldi ráðinn bæjarstjóri í Ölfusi. Elliði hefur 20 ára reynslu af sveitarstjórnarstörfum og starfaði sem bæjarstjóri í Vestmannaeyjum síðustu 12 árin. Elliði þekkir vel til sveitarstjórnarmála á Suðurlandi og hefur um árabil starfað á vettvangi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.

„Eftir að hafa ígrundað stöðu þeirra sveitarfélaga sem auglýstu eftir stjórnendum og þau verkefni sem þar eru framundan taldi ég að Ölfus væri ekki eingöngu eindæma áhugavert og sterkt samfélag heldur byggi það yfir framtíðartækifærum sem vart eiga sér hliðstæðu á Íslandi,“ segir Elliði Vignisson í fréttatilkynningu frá sveitarfélaginu.

Nefnir hann að Ölfus er landmikið sveitarfélag með útflutningshöfn og í nágrenni við alþjóðaflugvöll. Auk þess sem þar fer fram mikil orkuvinnsla, öflug ferðaþjónusta og nálægðin við gjöful fiskimið. Þá nefnir hann tækifærin sem felast í nálægðinni við höfuðborgina.

„Til að bæta um betur hafa kjörnir fulltrúar í samtarfi við íbúa valið sér slagorðið „Hamingjan, er hér“ og það þykir mér einmitt eiga að vera útgangspunktur í störfum okkar í almenningsþjónustu, að auka lífsgæði íbúa,“ segir Elliði og bætir við: „Það eru spennandi verkefni sem bíða í Ölfusi.  Ég er auðmjúkur frammi fyrir því að vera treyst fyrir þátttöku í þeim verkefnum sem framundan eru og mun í samstarfi við kjörna fulltrúa og íbúa þessa góða samfélags gera allt sem í mínu valdi stendur til að standa undir því trausti sem mér er sýnt.“

Elliði er sálfræðingur og með grunn- og framhaldsskólakennaramenntun. Hann er giftur Berthu Johansen og eiga þau tvö börn. Hann hefur störf 9. ágúst næstkomandi.

Ölfusið stendur nú frammi fyrir ómældum tækifærum

Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar Ölfuss.

„Við teljum það mikinn feng fyrir sveitarfélagið að fá Elliða til liðs við okkur. Hann hefur sýnt og sannað að í honum býr kraftur sem eftir er tekið, einlægur talsmaður síns samfélags, sókndjarfur baráttumaður fyrir sína umbjóðendur og faglegur rekstrarmaður. Ölfusið stendur nú frammi fyrir ómældum tækifærum sem mikilvægt er að stýrt verði af festu og ákveðni. Markmið okkar er að byggja hér upp samfélag sem sameinar kosti þess að búa í nánu samfélagi á landsbyggðinni, með sterka innrigerð og öflugt atvinnulíf og þess að geta nýtt þá miklu kosti sem fylgja því að vera í nábýli við borgina. Með þetta í huga bjóðum við Elliða velkominn til starfa,“ sagði Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar í tilkynningu.

Sjálfstæðisflokkurinn í Ölfusi fer með hreinan meirihluta í bæjarstjórn eftir nýliðnar kosningar þar sem flokkurinn felldi fráfarandi meirihluta og náði 51,93% atkvæða.