Júlíus Vífill hættir sem borgarfulltrúi

Júlíus Vífill Ingvarsson sagði í gær af sér sem borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Júlíus Vífill hefur verið borgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í 18 ár og var annar á lista flokksins í Reykjavík í síðustu borgarstjórnarkosningum. Hann sat sem aðalmaður í umhverfis- og skipulagsráði, menningar- og ferðamálaráði, borgarráði og í stjórn Faxaflóahafna.

Júlíus Vífill Ingvarsson
Júlíus Vífill Ingvarsson