Kjartan Leifur Sigurðsson hefur verið kjörinn ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði mannréttinda, en hann var kjörinn á sambandsþingi Landssambands ungmennafélaga sem fram fór á laugardaginn. Kjartan Leifur bauð sig fram undir merkjum Sambands ungra sjálfstæðismanna en hann hafði betur í kjörinu gegn frambjóðendum Ungs jafnaðarfólks og ungliðahreyfingar Íslandsdeildar Amnesty International.
Kjartan Leifur, sem situr í framkvæmdastjórn SUS, hlaut meirihluta atkvæða í kjörinu, en hann mun nú meðal annars sækja allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem fram fer í september í New York en allsherjarþingið er æðsta stofnun Sameinuðu þjóðanna og koma þar saman fulltrúar allra aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna.
„Það er mér mikill heiður að vera veitt þetta mikla traust og lít ég björtum augum á þau verkefni sem fram undan eru. Mannréttindi eru undirstaða frjálsra lýðræðissamfélaga og er mikilvægt að ungt fólk hér á landi eigi sér öflugan málsvara á þessu sviði, sá öflugi málsvari ætla ég mér að vera,“ segir Kjartan Leifur, nýkjörinn ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði mannréttinda.
Fleiri fulltrúar SUS náðu kjöri á sambandsþinginu en Eiður Welding hlaut kjör sem ritari Landssambands ungmennafélaga.
Mun Eiður nú taka sæti í stjórn Landssambands ungmennafélaga og mun þar vera öflugur fulltrúi ungra sjálfstæðismanna.
Samband ungra sjálfstæðismanna er afar stolt af þessum öflugu fulltrúum sínum sem munu án efa skila góðu verki í þessum nýju verkefnum sínum.


