30. janúar 2026

100 ár afmæli Varðar

Kæri sjálfstæðismaður í Reykjavík.

Senn líður að aldarafmæli Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, en Vörður var stofnaður sem landsmálafélagið Vörður þann 13. febrúar árið 1926.

Í tilefni afmælisins Varðar hefur ágrip af sögu Varðar verið tekið saman af hálfu Björns Jóns Bragasonar, sagnfræðings, en afmælisritið verður formlega gefið út við hátíðlega athöfn í febrúarmánuði, afmælismánuði Varðar.

Þeir sjálfstæðismenn sem óska þess að leggja framtakinu lið geta styrkt útgáfuna hér og fengið nafn sitt á tabula gratulatoria. Einnig gefst fyrirtækjum og lögaðilum kostur á því að styrkja útgáfuna sérstaklega með því að senda tölvupóst á jonb@xd.is.

Frestur til að skrá sig í hvort tveggja er til 10. febrúar nk.

Frekari hátíðarhöld vegna 100 ára afmælis Varðar verða auglýst síðar í febrúar, en í ljósi þess að borgarstjórnarkosningar eru framundan verður afmælisfögnuðurinn haldinn í samfloti við upphaf kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og með frambjóðendur flokksins og stefnumál í forgrunni.

Vörður, fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík