Leyfi gefin út til veiða á langreyði og hrefnu
'}}

Bjarni Benediktsson matvælaráðherra hefur gefið út leyfi til veiða á langreyðum til Hvals hf. Auk leyfis til að veiða hrefnu til tog- og hrefnuveiðibátsins Halldórs Sigurðssonar ÍS 14 sem er í eigu Tjaldtanga ehf. Þrjár umsóknir bárust um leyfi til hrefnuveiða og ein umsókn til veiða á langreyðum. Leyfin eru gefin út í samræmi við ákvæði laga nr. 26/1949 um hvalveiðar, að fengnum umsögnum Fiskistofu og Hafrannsóknastofnunar.

Leyfin eru veitt til fimm ára líkt og árin 2009, 2014 og 2019 og þannig er nokkur fyrirsjáanleiki í atvinnugreininni tryggður. Leyfin framlengjast árlega um eitt ár og heimilt er að flytja allt að 20% af veiðiheimildum hvers árs yfir á næsta ár. Fiskistofa og Matvælastofnun munu sem fyrr hafa eftirlit með veiðunum.

Í tilkynningu frá matvælaráðuneytinu segir: „Stjórnun á nýtingu lifandi auðlinda sjávar á Íslandi er í föstum skorðum og skal leyfilegur heildarafli á langreyði og hrefnu fylgja veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar sem byggir á sjálfbærri nýtingu og varúðarnálgun. Ráðgjöfin er byggð á úttektum Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðsins (NAMMCO) og mælir fyrir um að árlegar veiðar á langreyði á tímabilinu 2018-2025 nemi ekki meira en 161 dýrum á veiðisvæðinu Austur-Grænland/Vestur-Ísland og að hámarki 48 langreyðum á svæðinu Austur-Ísland/Færeyjar.“

Þá segir að í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar fyrir tímabilið 2018-2025 sé vísað til mats á stofnþróun frá 2017, en þar komi fram að langreyði hafi fjölgað jafnt og þétt við Ísland frá upphafi hvalatalninga árið 1987. Einnig kemur þar fram að fjöldinn í síðustu talningu hafi verið sá mesti frá því talningar hófust. Skv. leiðréttu mati fyrir allt talningasvæði Íslands og Færeyja hafi verið 40.788 langreyðar, þar af 33.497 dýr á Austur Grænlands-Íslands stofnasvæðinu.

Ráðleggur stofnunin jafnframt að árlegar veiðar á hrefnu árin 2018-2025 nemi ekki meira en 217 dýrum. Árið 2018 voru sex hrefnur veiddar við Ísland og árið 2021 var ein hrefna veidd. Engir langreyðar hafa verið veiddir á árinu 2024, árið 2022 voru 148 dýr veidd eftir þriggja ára veiðihle og 24 dýr voru veidd árið 2023.

„Með útgáfu leyfanna framfylgir matvælaráðherra lögum nr. 26. frá 1949 um hvalveiðar sem eru sett af Alþingi. Einungis eru leyfðar veiðar á langreyði og hrefnu við Ísland en aðrir hvalastofnar eru friðaðir,“ segir á vef ráðuneytisins.

Sjá nánar í tilkynningu ráðuneytisins hér.