Sjálf­stæðis­flokkurinn: Fyrir budduna þína og fram­tíðina
'}}

Gísli Stefánsson skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi:

Í komandi kosningum leggur Sjálfstæðisflokkurinn frammi áherslu á málefni sem snúa að hag heimila, atvinnulíf og framtíðarsýn landsins. Við setjum skynsamlegar lausnir í forgang sem létta undir með fólki og styrkja innviði samfélagsins, hvort sem það snýr að lánakjörum, sköttum eða mikilvægum málaflokkum eins og orkumálum og málefnum hælisleitenda.

Lægri vextir og betri lánakjör

Vextir eru farnir að lækka, og Seðlabankinn hefur þegar hafið vegferðina með 0,75% lækkun frá því í október. Þetta er byrjun á því sem við í Sjálfstæðisflokknum stefnum að: eðlilegu vaxtaumhverfi. Markmið okkar er að íslensk heimili og fyrirtæki fái að njóta sambærilegra kjara og þekkist á Norðurlöndunum. Með því skapast meira svigrúm fyrir fjárfestingar, hvort sem það er í eigin húsnæði eða nýsköpun.

Til að styðja við þessa vegferð leggjum við áherslu á raunhæfar lausnir fyrir húsnæðiskaup. Við viljum:

  • Afnema stimpilgjöld á kaupum einstaklinga á íbúðarhúsnæði.
  • Framlengja og hækka heimildir til skattfrjálsrar ráðstöfunar séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán.
  • Skapa hvata fyrir foreldra með því að leyfa skattfrjálsa ráðstöfun séreignarsparnaðar í þágu barna, allt að 2 milljónum króna.

Skattkerfið til endurskoðunar

Við viljum kerfi sem hvetur til verðmætasköpunar og vinnu, en ekki letur. Með því að:

  • Hækka efsta þrep tekjuskatts úr 1,2 milljónum í tvöföld meðallaun, gefst fólki tækifæri til að taka að sér fleiri verkefni án þess að verða fyrir ósanngjarnri skattheimtu.
  • Hækka frítekjumark fjármagnstekna í 500 þúsund krónur, svo fólk þurfi ekki að greiða skatta af verðbólgu.
  • Helminga erfðafjárskatt og fjórfalda frítekjumark hans í 20 milljónir króna.

Við höfum skýra stefnu fyrir barnafólk, með 150 þúsund króna árlegum skattaafslætti fyrir hvert barn undir þriggja ára aldri.

Styrkir innviðir og ávinningur fyrir þjóðina

Sjálfstæðisflokkurinn hefur þegar náð árangri í orkumálum þrátt fyrir hindranir. Hvammsvirkjun og Búrfellslundur eru á áætlun, leyfisveitingar hafa verið einfaldaðar og Landsnet er með stór verkefni í undirbúningi. Þessi verk tryggja að þjóðin hafi nægt rafmagn og stuðla að grænni framtíð.

Á sama tíma höfum við gripið til aðgerða í málefnum hælisleitenda. Með breytingum á útlendingalögum hefur áætlaður kostnaður í málaflokknum lækkað um 10 milljarða. Þessar breytingar eru til hagsbóta fyrir bæði íslenska skattgreiðendur og kerfið sjálft.

Heildarsýn fyrir betri framtíð

Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki aðeins lækka skatta og tryggja lægra vaxtastig, heldur einnig skapa samfélag sem leggur áherslu á frelsi, framtak og sjálfbærni. Með því að styrkja efnahag heimilanna, bæta innviði og lækka opinberan kostnað erum við að leggja grunn að bjartari framtíð fyrir Ísland.

Þetta eru kosningar sem snúast ekki bara um hvað við getum gert, heldur hvað við höfum þegar sýnt fram á að er hægt að gera. Með skynsemi og úthald er framtíðin í okkar höndum.

Setjum því X við D á laugardaginn

Greinin birtist á visir.is 29. nóvember 2024.