Ingveldur Anna Sigurðardóttir skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi:
Kristrún Mjöll Frostadóttir birtist nýverið í myndbandi á samfélagsmiðlum vopnuð sleggju og sagðist ætla að „negla niður“ vextina. Staðan er aftur á móti þannig að vextir nú teknir að lækka og verðbólga í frjálsu falli. Með ábyrgri efnahagsstefnu sem birtist í þessum góða árangri sparar Sjálfstæðisflokkurinn henni ómakið og því er engin þörf á Kristrúnu og hennar sleggju.
Lækkandi vextir ekki sjálfgefnir
Lækkandi vextir og minni verðbólga eru kærkomin tíðindi fyrir heimilin í landinu. Eftir krefjandi tíma í efnahagsmálunum sökum þekktra utanaðkomandi aðstæðna og alþjóðlegrar verðbólgu er loks tekið að birta til. Nú þegar frekari vaxtalækkun er í sjónmáli á áherslan að vera á að létta enn frekar undir með heimilunum með markvissum skattalækkunum. Við eigum ekki að skipta háum vöxtum út fyrir háa skatta; við eigum að einbeita okkur að því að auka fjárhagslegt frelsi og öryggi fjölskyldna.
Það er ekki sjálfsagt að lækkun vaxta þýði sjálfkrafa betri kjör fyrir heimilin. Ef stjórnvöld velja að svara vaxtalækkunum með aukinni skattheimtu eða útþenslu hins opinbera tapa heimilin þeim ávinningi sem vaxtalækkun getur veitt. Þess vegna skiptir máli að stefna okkar sé skýr: Vaxtalækkun og skattalækkun eiga að fara hönd í hönd, þannig að heimilin fái meira svigrúm til að vaxa og dafna.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á framtíðina
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi talað fyrir því að minnka báknið og lækka skatta, og leggur áherslu á að heimilin njóti góðs af betri efnahagslegum skilyrðum. Flokkurinn lítur ekki á skattahækkanir sem leið til að „stoppa í gatið“ þegar fjármál heimilanna fara batnandi. Þvert á móti vill flokkurinn tryggja að heimilin fái að halda eftir þeim fjármunum sem þau hafa unnið sér inn.
Heimili landsins eiga rétt á að njóta þess svigrúms sem vaxtalækkanir skapa til að bæta eigin fjárhag og lífsgæði. Árangurinn af lækkandi vöxtum þarf að skila sér til fólksins í landinu, í stað þess að verða tættur upp í formi nýrra skatta eða aukinnar opinberrar eyðslu.
Hvað veljum við?
Valið á kjördag er einfalt: Viljum við leyfa heimilunum að njóta ávinningsins af vaxtalækkunum, eða viljum við sjá skattahækkanir tæta niður þetta svigrúm? Saga hávaxtatímabilsins kennir okkur að það er alltaf hagur heimilanna að hafa meira fé milli handanna. Því er galið að íhuga skattahækkanir einmitt nú, þegar heimilin eiga kost á að rétta úr kútnum eftir erfitt tímabil.
Vaxtalækkanir og skattalækkanir mynda þannig sterkt tvíeyki fyrir framtíð íslenskra heimila. Þær tryggja að ávinningurinn af betri efnahagslegri stöðu renni til þeirra sem þurfa mest á honum að halda: fjölskyldna landsins. Þetta er sú framtíðarsýn sem Sjálfstæðisflokkurinn talar fyrir, og þetta er sú framtíð sem tryggir okkur öllum betri kjör og meiri von.
Greinin birtist á visir.is 28. nóvember 2024.