Vextir lækkaðir á vakt Sjálfstæðisflokksins
'}}

„Árangur skýrrar stefnu okkar birtist í lækkun vaxta núna í morgunsárið. Vaxtalækkun upp á 0,5% þýðir 190 þúsund króna minni greiðslubyrði á ári fyrir heimili með 40 milljón króna lán. Forgangsmál Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn hefur verið að stuðla að lækkun verðbólgu svo Seðlabankinn geti lækkað vexti. Það er að ganga eftir, verðbólgan er í frjálsu falli, hún er að “húrrast niður” eins og greiningaraðilar hafa orðað það,“ segir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Íslands í morgun að lækka stýrivexti í morgun úr 9,0% í 8,5%, en áður höfðu þeir lækkað úr 9,25% í 9,0%.

Eitt af aðal áherslumálum Sjálfstæðisflokksins er að ná vaxtastigi í landinu niður og það er að ganga eftir.

„Sjálfur Seðlabankinn gerir nú ráð fyrir mun minni verðbólgu á næstunni en áður var talið. Ef við höldum áfram á réttri leið er vaxtalækkunin í dag aðeins forsmekkur af því sem koma skal á nýju ári. Þannig myndi 1,5% lækkun til viðbótar minnka greiðslubyrðina um 560 þúsund, með 2,5% lækkun minnkar hún um fast að milljón,“ segir Bjarni.

Hann segir að í kosningabarátunni sé karpað um ýmislegt, flest mikilvægt á sinn hátt.

„Það er hins vegar ótvírætt stærsta hagsmunamál heimila og fyrirtækja að þessi þróun haldi áfram. Allir flokkar lofa lækkun vaxta en ákvörðun dagsins sýnir að það er að takast á okkar vakt. Gætum þess að setja árangurinn ekki í uppnám með ódýrum töfralausnum, sama hvaða nafni þær eru kallaðar,“ segir Bjarni.