Framboðslistar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
'}}

Framboðslistar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík voru samþykktir og kynntir á fundi Varðar, kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, í félagsheimili Þróttar í Laugardal laust eftir hádegi í dag. Fullt var út úr dyrum á fundi kjördæmisráðsins en á annað hundrað manns mættu til fundarins.

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, flutti ávarp. Hann hefur setið á Alþingi í 21 ár, var þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir flokkinn. Albert Guðmundsson, formaður Varðar, þakkaði Birgi fyrir ómetanleg störf í þágu Sjálfstæðisflokksins og sjálfstæðisstefnunnar en Birgir fékk standandi lófaklapp að loknu ávarpi sínu.

Framboðslistar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í heild:

Reykjavíkurkjördæmi Norður

  1. Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra
  2. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður
  3. Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður
  4. Hulda Bjarnadóttir, viðskiptafræðingur
  5. Tryggvi Másson, atferlishagfræðingur og fyrrv. framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins
  6. Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrv. þingmaður Sjálfstæðisflokksins
  7. Júlíus Viggó Ólafsson, nemi í hagfræði og formaður Heimdallar
  8. Bessí Jóhannsdóttir, formaður SES
  9. Egill Trausti Ómarsson, pípari
  10. Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri
  11. Snorri Ingimarsson, rafmagnsverkfræðingur
  12. Erla Hjördís Gunnarsdóttir, verkefnastjóri
  13. Benedikt Gabríel Jósepsson, byggingaverktaki
  14. Cristopher G. Krystynuson, dr. í jarðfræði og verkfræðingur
  15. Júlíana Einarsdóttir, mannauðsstjóri
  16. Atli Guðjónsson, sérfræðingur í landupplýsingakerfum
  17. Elínborg Ásdís Árnadóttir, grunnskólakennari
  18. Oliver Einar Nordquist, laganemi og stjórnarmaður í Heimdalli
  19. Kristín Alda Jörgensdóttir, íþróttakona og gjaldkeri Heimdallar
  20. Bjarni Pálsson, framkvæmdastjóri og form. Sjálfstæðisfélags Kjalnesinga
  21. Birkir Snær Sigurðsson, nemi í íþróttafræði
  22. Friðrik Sophusson, fyrrv. ráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins

Reykjavíkurkjördæmi Suður

  1. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra
  2. Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður
  3. Jón Pétur Zimsen, aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla
  4. Sigurður Örn Hilmarsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrum formaður Lögmannafélagsins
  5. Tómas Þór Þórðarson, íþróttafréttamaður
  6. Birna Bragadóttir, forstöðukona frumkvöðlaseturs og vísindamiðlunar
  7. Sigurður Ágúst Sigurðsson, fyrrv. Forstjóri og formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
  8. Anna Fríða Ingvarsdóttir, körfuknattleikskona
  9. Gunnar Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Heilsugæslunnar á Höfða
  10. Ágústa Guðmundsdóttir, frumkvöðull og professor emeritus
  11. Þórður Gunnarsson, hagfræðingur
  12. Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir, kennari, uppeldis- og menntunarfræðingur
  13. Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, kraftlyftingamaður og fasteignasali
  14. Auður Jónsdóttir, hársnyrtir og viðskiptafræðingur
  15. Ari Björn Björnsson, menntaskólanemi
  16. Marteinn Pétur Urbancic, flugmaður, hlaðvarpari og hlaupari
  17. Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnarmaður
  18. Guðjón Birkir Björnsson, húsasmiður
  19. Bryndís Gunnarsdóttir, verkefnastjóri
  20. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri
  21. Elsa Björk Valsdóttir, skurðlæknir
  22. Birgir Ármannsson, forseti Alþingis