Skattaafsláttur af börnum

Diljá Mist Einarsdóttir formaður utanríkismálanefndar Alþingis:

Í dag gengur síðasti þingvetur kjörtímabilsins í garð og Alþingi verður sett í 155. sinn. Ég notaði sumarið til undirbúnings að vanda og átti fjölmarga góða fundi. Niðurstaðan er sú að í dag mun ég leggja fram nokkur þingmál sem ég hef unnið að – nokkur ný, en önnur eru lögð fram að nýju.

Meðal nýrra þingmála sem ég legg fram ásamt hópi sjálfstæðismanna er lagafrumvarp um skattafrádrátt vegna barna innan 16 ára aldurs á framfæri forráðamanns samkvæmt nánar tilgreindum skilyrðum:

1. 150.000 kr. vegna eins barns,

2. 300.000 kr. vegna tveggja barna,

3. 575.000 kr. vegna þriggja barna,

4. 370.000 kr. til viðbótar við 575.000 fyrir hvert barn umfram þrjú.

Staða barnafjölskyldna er mér hugleikin sem er skiljanlegt, eigandi ung börn og með mikið af barnafólki kringum mig. Sú staðreynd opnar augu mín fyrir því að barneignir hafa verulega neikvæð áhrif á tekjur foreldra, ekki síst mæðra sem taka ennþá mun stærri hluta fæðingarorlofs og lengja það enn frekar. Byrjunarkostnaður í aðdraganda og strax í kjölfar barneigna er mikill. Dagvistunarvandinn frá því fæðingarorlofi lýkur og þar til börn fá dagvistunarpláss eykur enn á útgjöld og fjárhagsáhyggjur foreldra. Þótt skylduskólaganga (og nú skólamáltíðir) séu ókeypis, fylgja ýmis útgjöld börnum sem hafa lokið leikskólagöngu. Má þar m.a. nefna skipulagt frístundastarf grunnskólanna, auk íþrótta og annarra tómstunda sem eru mjög kostnaðarsamar þrátt fyrir (eða í takt við) veglegan frístundastyrk sveitarfélaga. Tómstundastarf er lykilþáttur í forvarnastarfi og þátttaka barna og ungmenna í slíku starfi er mjög góð í samanburði við aðrar þjóðir. Þá er ég ekki einu sinni byrjuð að ræða rekstrarkostnað barnafjölskyldna; fleiri munna til að metta og kroppa til að klæða.

Við sjálfstæðismenn erum almennt þeirrar skoðunar að skatta þurfi að lækka og opinberar álögur séu of háar á barnafjölskyldur. Fæðingartíðni á Íslandi er auk þess í sögulegu lágmarki og umræða hefur spunnist um að barneignir séu orðnar forréttindi. Enda sýna rannsóknir að fæðingartíðnin hefur minnkað mest hjá þeim sem eru í lægri tekjuþrepum.

Skattaafsláttur vegna framfærslu barna er meðal þess sem ég mun beita mér fyrir í þinginu. Vonandi fáum við sjálfstæðismenn fleiri með okkur á þann vagn.

Greinin birtist á visir.is 10. september 2024.