Bjarni fundaði með forsætisráðherrum Norðurlanda

„Norðurlöndin eru vel menntaðar og framsæknar þjóðir, þar sem lífskjör eru með besta móti. Við eigum ekki að sætta okkur við neitt minna en að vera áfram í fremstu röð þegar kemur að nýsköpun, frumkvöðlastarfsemi og samkeppnishæfni í stærra samhengi. Til þess þurfa innviðirnir að vera til staðar og við megum ekki láta of íþyngjandi regluverk og kröfur verða okkur fjötur um fót. Um þetta var almenn samstaða í hópnum,” segir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra sem í gær tók þátt í sumarfundi forsætisráðherra Norðurlandanna í Stokkhólmi.

Á fundinum samþykktu ráðherrarnir yfirlýsingu um samkeppnishæfni Norðurlanda og funduðu með Olaf Scholz, kanslara Þýskalands.

Forsætisráðherrarnir funduðu með fulltrúum atvinnulífsins þar sem rætt var um samkeppnishæfni. Sveinn Sölvason forstjóri Össurar var fulltrúi íslensks atvinnulífs á fundinum. Rætt var m.a. um brýna nauðsyn þess að ýta undir samkeppnishæfni Norðurlanda jafnt sem Evrópu í heild. Álfan væri að dragast aftur úr í þeim efnum. Þá var í því samhengi m.a. rætt um stafæna innviði, aðgengi að fjármagni, leyfisveitingar til grænna orkuverkefna og uppbyggingu hergagnaiðnaðar.

Í gærkvöldi fór fram fundur þar sem rætt var um öryggis- og varnarmál, áframhaldandi dyggan stuðning við Úkraínu og um málefni Atlandshafsbandalagsins.

Bjarni átti jafnframt tvíhliða fund með Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, þar sem þeir ræddu m.a. frekari tækifæri í samskiptum ríkjanna og stöðuna í alþjóðamálum.