Aðalfundur Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi

Aðalfundur Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi verður haldinn þriðjudaginn 23. apríl nk. í húsnæði félagsins, Hverafold 1-3, kl. 19:00. Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
  2. Reikningsskil.
  3. Skýrslur nefnda.
  4. Kjör stjórnar og skoðunarmanna.
  5. Kjör fulltrúa í fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
  6. Tillögur um lagabreytingar.
  7. Önnur mál.

Við hvetjum þá sem hafa áhuga á því að taka þátt í starfi félagsins til þess að bjóða sig fram til stjórnarsetu. Við tökum vel á móti öllum.

Þeir sem bjóða sig fram skulu senda póst með fullu nafni, kennitölu og símanúmeri, á netfangið fsg@xd.is eigi síður en tveimur sólarhringum fyrir boðaðan aðalfund.

Stjórn Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi