75 ára af­mæli friðar­banda­lags

Diljá Mist Einarsdóttir formaður utanríkismálanefndar Alþingis:

Í dag eru 75 ár liðin frá því Atlantshafsbandalaginu (NATO) var komið á fót með Atlantshafssáttmálanum sem var undirritaður í Washington 4. apríl 1949. Ísland bar þá gæfu til að vera eitt tólf stofnríkja öflugasta varnarbandalags heims. Fáeinum dögum áður hafði Alþingi samþykkt inngöngu Íslands í NATO. Mikill stuðningur var við aðildina í Sjálfstæðisflokknum sem þá sat í ríkisstjórn.

Ekki voru þó allir sáttir við inngöngu Íslands í bandalagið. Henni var harðlega mótmælt , m.a. á Austurvelli daginn sem Alþingi samþykkti inngönguna. Á þeim 75 árum sem eru liðin hefur varnarbandalagið sannað gildi sitt, enda hefur friður haldist í aðildarlöndum þess allan þennan tíma. Mikill meirihluti Íslendinga er því skiljanlega fylgjandi aðild Íslands að NATO.

Undanfarin tvö ár hafa þó sannkölluð óveðursský verið á lofti í öryggis- og varnarmálum í okkar heimshluta. Ólögmæt allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu er stærsta ógn sem steðjað hefur að Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Sú staðreynd hefur leitt til gjörbreytts öryggismats í álfunni og til inngöngu Finnlands og Svíþjóðar í NATO. Inngöngu sem hafði áður þótt óhugsandi, en nýtur nú ríks stuðnings meðal þjóðanna og fulls skilnings okkar heimshluta að fáum undaskildum.

Hér heyrast ennþá lágværar en fámennar furðuraddir sem mótmæla aðild Íslands að NATO. Þeim er að vísu gefið vægi með óskiptri athygli Ríkisútvarpsins, en e.t.v. eru starfsmenn þess eins hlessa og aðrir. Svokallaðir friðarsinnar kalla þannig eftir því af fullri alvöru, m.a. með skrifum hér í Vísi, að Ísland gangi úr NATO! (Rang)hugsunin er sú að aðild að varnarbandalagi geri okkur að skotmarki – varnalaust Ísland væri mun öruggara og ólíklegra skotmark stórvelda í vígahug.

Í gegnum söguna hafa misvitrir menn talað fyrir ýmsum leiðum að friði. Þannig réttlætti Chamberlain „friðar“samningana í Munchen 1938. Við vitum hvernig það fór. Árum saman bugtuðu forystumenn í Evrópu sig fyrir ágengni Pútíns í von um frið. Við vitum hvernig það fór.

Það er frumskylda stjórnvalda að tryggja öryggi borgaranna. Ef það er eitthvað sem við getum lært af sögunni er það að það eina sem stöðvar framgang illra afla er hervald og öflugur fælingarmáttur. Samstaða lýðræðisríkja í þessu öflugasta varnarbandalagi sögunnar hefur tryggt frið milli aðildarríkjanna í 75 ár og komið í veg fyrir utanaðkomandi hernaðarárásir. Aðild Íslands að NATO er algjör lykilstoð í vörnum okkar. Við getum því verið stolt og þakklát á þessum tímamótum. Það er næsta víst að margir vildu vera í okkar sporum.

Greinin birtist á visir.is 4. apríl 2024.