Fyrirmyndarríki sósíalista hvergi til

Rætt var við Bjarna Benediktsson, utanríkisráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, í tímariti Frjálsrar verslunar um einkavæðinguna.

Bjarni sagðist gefa lítið fyrir fortíðarþrá þeirra sem vilja endurvekja „gömlu góðu dagana“ þar sem ríkið var alltumlykjandi í atvinnurekstri en benti þó á að slíkar hugmyndir séu mikilvægar fyrir umræðuna.

„Ég fagna því að hugmyndafræðileg umræða geti farið fram og því sem slík umræða leiðir til. Þegar fólk stígur fram með sósíalískar hugmyndir skapast oft betri grunnur til þess að skilja hver valkosturinn er og hvers virði hann sé. Í sinni allra einföldustu mynd er erfitt fyrir talsmenn þessara sósíalísku hugmynda að benda á fyrirmyndarríkið því hvert sem litið er virðast þessar hugmyndir hafa hrunið til grunna,“ sagði Bjarni.

Alls staðar þar sem eru raunverulegar framfarir sé byggt á sterku einkaframtaki, frelsi til athafna og minni ríkisafskiptum.

„Þeir sem tala fyrir frelsinu og því að mikilvægt sé að halda aftur af ríkisafskiptum eru oft sakaðir um að vera á móti ríkisrekstri í einu og öllu. Það er alrangt. Við höfum byggt upp samfélag á Íslandi sem hefur sýnt sig að tryggi vel jöfn tækifæri allra. Það byggist m.a. á því að við erum með sameiginlega fjármögnun á menntakerfinu. Þannig á ekki að skipta neinu máli hvernig heimilisbókhald foreldra barna stendur. Öll börn í landinu eiga jafnt aðgengi að skólum. Þar að auki erum við með vel fjármagnað opinbert heilbrigðiskerfi. Þetta er ekki tilfellið í öllum samfélögum sem við viljum bera okkur saman við í lífsgæðum en meginlínan hjá öllum Norðurlandaþjóðunum er svipuð. Það er verðmætt að halda utan um þessi jöfnu tækifæri sem eru grunnurinn í þeirri sátt sem ríkir um það þjóðskipulag sem við viljum verja og halda áfram að þróa.“

Hægt er að nálgast viðtalið við Bjarna í heild sinni hér.