Kyn­færin skorin af konum

Diljá Mist Einarsdóttir formaður utanríkismálanefndar Alþingis:

Ísland og Síerra Leóne hafa verið í samstarfi um þróunarsamvinnu frá árinu 2018. Markmiðið hefur verið að styðja við sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda og auka lífsgæði í fiskveiðisamfélögum. Verkefnin eru okkur Íslendingum ekki ókunn. Ísland hefur einnig stutt við verkefni sem miðar að því að bæta lífskjör kvenna sem glíma við fæðingarfistil (e. obstetric fistula). Nú er unnið að því að útvíkka samstarfið við Síerra Leóne, en landið þykir henta vel fyrir áherslur og sérþekkingu Íslands í þróunarsamvinnu.

Síerra Leóne er eitt fátækasta ríki heims og er nú í sæti 182 af 189 ríkjum á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna (Human Development Index). Þjóðin hefur glímt við hvert áfallið á fætur öðru, styrjaldir og plágur. Verkefnin eru því ærin. Eitt þeirra er gríðarlega hátt hlutfall kvenna í Síerra Leóne sem hafa verið limlestar á kynfærum, flestar á barnsaldri. Limlestingin felst í því að hluti af eða öll ytri kynfæri kvenna eru fjarlægð. Þetta er gríðarlega alvarlegt ofbeldi og mannréttindabrot gagnvart konum.

Ég átti í vikunni samtal á Alþingi við utanríkisráðherra um þessar alvarlegu stöðu. Þar óskaði ég eftir upplýsingum um það hvort og þá hvernig íslensk stjórnvöld hygðust beita sér fyrir útrýmingu á þessu skelfilega ofbeldi þegar við aukum samstarfið við Síerra Leóne.

Utanríkisráðherra kvað íslensk stjórnvöld hafa látið sig málið varða um árabil, bæði í almennu málsvarastarfi á alþjóðlegum vettvangi og sömuleiðis með stuðningi við einstök verkefni. Mikil tregða stjórnvalda í Síerra Leóne við að uppræta kynfæralimlestingu kvenna væri þó mikil hindrun. Ráðherrann upplýsti um að íslensk stjórnvöld hefðu engu að síður mótmælt ofbeldinu við þarlend stjórnvöld og að leiða væri leitað fyrir aukið framlag Íslands til baráttunnar gegn kynfæralimlestingu stúlkna og kvenna í Síerra Leóne. Unnið væri að undirbúningi sérstaks samstarfsverkefnis sem snýr að þessari baráttu.

Það er jákvætt að heyra af málsvarastarfi íslenskra stjórnvalda í Síerra Leóne og fyrirhuguðum verkefnum gegn kynfæralimlestingu. Ég hvatti ráðherrann til að leita allra leiða til að koma mótmælum á framfæri við þarlend stjórnvöld, þrátt fyrir andstöðu, og að leggja sérstaka áherslu á þetta brýna baráttumál.

Greinin birtist á visir.is 21. mars 2024.