Tvö eyru og einn munn

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra:

Mundu að þú ert með tvö eyru og einn munn” sagði amma mín reglulega við okkur systkinin enda er það ágætis regla að við hlustum meira en við tölum.

Við sem störfum í stjórnmálum þurfum að hafa þetta hlutfall milli eyrna og munns sérstaklega ofarlega í huga. Einn mikilvægasti þáttur starfsins er að hitta og hlusta á fólk. Hvað brennur þeim í brjósti, hverjar eru áskoranir þeirra og tækifæri. Skilja ólíkar aðstæður fólks, heyra af nýjum hugmyndum, tækifærum og framtíðarsýn.

Hringferð þingflokks Sjálfstæðisflokksins hefst í dag og þá gefst okkur tækifæri til að eiga milliliðalaust samtali við fólk um land allt. Í gær sóttum við fund í Reykjanesbæ. Í dag förum við á Akranes, Húnaþing vestra og Blönduós. Á laugardag verður ferðinni heitið á Sauðárkrók, Siglufjörð, Dalvík og Akureyri. Mývatnssveit, Egilsstaðir, Reyðarfjörður og Eskifjörður verður á leið okkar á sunnudag. Á mánudag verðum við á Djúpavogi, Höfn, Kirkjubæjarklaustri og Vík. Við endum hringferðina á Hvolsvelli, Reykholti, Flúðum, Hrunamannahreppi, Selfossi og Ölfus. Að lokinni hringferð mun ég síðan heimsækja skóla og fyrirtæki í mínu kjördæmi, Reykjavík.

Að mæta fólki í sinni heimabyggð er verðmætt, við getum sett okkur inn í raunverulegar aðstæður fólks, hitt þau á heimavelli og í kjölfarið lagt okkar af mörkum til að knýja fram breytingar til góðs á samfélaginu okkar, mótað sterkari sýn og átt dýrmæt samtal.

Það þekki ég vel úr ferðum mínum um land allt þar sem ég er reglulega með skrifstofu mína óháð staðsetningu og hef nú þegar heimsótt 25 sveitarfélög og mun halda áfram. Að heyra og skilja hvað brennur á þeim sem reka fyrirtæki, stór og smá, hvort sem er á landsbygðinni eða á höfuðborgarsvæðinu. Það skiptir máli að vita hvað brennur á þeim sem búa við skertar samgöngur eða lélegt netsamband. Það skiptir máli að heyra væntingar fólks til einfaldari og betri þjónustu, menntakerfisins og atvinnutækifæra. Vangaveltur um fleiri námstækifæri, öflug þekkingarsetur og meira fjarnám. Það skiptir máli að vita hvað má gera betur og hvernig við höldum áfram að bæta líf fólks og ná árangri.

Í hringferðinni sækjum við heim tugi bæja og vinnustaða, höldum opna fundi og mætum í pottinn. Við munum hlusta og eiga árangursrík samtöl við fjölbreyttan hóp fólks, einstaklinga í sjálfstæðum rekstri, frumkvöðla, námsmenn, bændur, sjómenn og stjórnendur.

Það er mikið tilhlökkunarefni að eiga samtal við fólk í öllum landsfjórðungum og vinna að því saman að leysa þá krafta sem búa um allt land úr læðingi.

Greinin birtist á Vísi 23. febrúar 2024.