Samstaða á Alþingi um afstöðu Íslands vegna átaka fyrir botni Miðjarðarhafs

Undir forystu Sjálfstæðisflokksins hefur utanríkismálanefnd Alþingis sameinast um þingsályktunartillögu um afstöðu Íslands vegna átaka fyrir botni Miðjarðarhafs. Tillagan byggir efnislega á ályktun Jórdaníu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna með breytingartillögu Kanada. Kosið verður um tillöguna síðar í dag.

Þingsályktunin í heild sinni:

  • Alþingi ályktar að án tafar skuli komið á vopnahléi af mannúðarástæðum á Gaza svæðinu svo tryggja megi öryggi almennra borgara, jafnt palestínskra sem ísraelskra
  • Alþingi fordæmir hryðjuverkaárás Hamasliða á almenna borgara í Ísrael sem hófst 7. október 2023
  • Alþingi fordæmir sömuleiðis allar aðgerðir ísraelskra stjórnvalda í kjölfarið sem brjóta gegn alþjóðlegum mannúðarlögum, þ.m.t. óheyrilega þjáningu, manntjón, mannfall almennra borgara og eyðileggingu borgaralegra innviða. Brýnt er að öll brot stríðandi aðila á alþjóðalögum verði rannsökuð til hlítar
  • Alþingi kallar eftir mannúðlegri meðferð á og tafarlausri lausn gísla, aðgengi hjálpar- og mannúðarsamtaka og að neyðarvistum og læknisaðstoð verði komið til almennings tafarlaust
  • Alþingi felur ríkisstjórninni að beita sér fyrir viðbótarframlagi til mannúðaraðstoðar og rannsóknar á brotum á alþjóðalögum til að fylgja eftir þeim áherslum sem fram koma í ályktun þessari

Skýr afstaða Íslands frá upphafi

Með þingsályktunartillögunni vill utanríkismálanefnd tryggja að afstaða Íslands vegna yfirstandandi hörmunga, sem haldið hefur verið á lofti frá upphafi átakanna, sé skýr og njóti stuðnings allra flokka á Alþingi. Brýnt sé að kalla eftir tafarlausu vopnahléi á átökum á svæðinu af mannúðarástæðum, að óhindrað aðgengi mannúðaraðstoðar verði tryggt og að verndun almennra borgara verði sett í forgang. Utanríkismálanefnd vill með tillögunni leggja áherslu á nauðsyn þess að óbreyttir borgarar njóti verndar í samræmi við alþjóðalög um mannúð og mannréttindi og harmar gríðarlega þjáningu, manntjón og mannfall almennra borgara, eyðileggingu heimila og innviða sem verði að stöðva.

Aðgengi að mannúðaraðstoð verði óheft og alþjóðalögum fylgt

Þá lýsir utanríkismálanefnd yfir þungum áhyggjum af ástandinu, sérstaklega á Gaza svæðinu, og hörmulegum afleiðingum þess og lýsir yfir eindregnum stuðningi við áköll um tafarlausan og óheftan aðgang mannúðaraðstoðar til að tryggja grunnþarfir palestínskra borgara. Í tillögunni er ítrekað mikilvægi þess að allir hlutaðeigandi aðilar fylgi skuldbindingum sínum á grundvelli alþjóðalaga og komið verði í veg fyrir frekari stigmögnun átaka og ofbeldis á svæðinu ásamt því að ítreka að réttlátri og varanlegri lausn á deilu Ísraelsmanna og Palestínumanna verði aðeins náð með friðsamlegum hætti í samræmi við alþjóðalög og á grundvelli tveggja ríkja lausnar.