Hófsemd í skattheimtu skilar sífellt auknum tekjum í ríkissjóð

Óli Björn Kárason alþingismaður skrifaði í gær áhugaverða grein í Morgunblaðið þar sem hann rekur þær skattkerfisbreytingar sem átt hafa sér stað í tíð Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins í fjármálaráðuneytinu síðasta áratuginn. Fjallað var einnig um efni greinarinnar hér. Þar eru raktar lækkanir tekjuskatts, og lækkanir tryggingagjalda, tolla og vörugjalda, erfiðafjárskatts og fjármagnstekjuskatts.

Óli Björn vísar í greininni í ítarleg svör fjármála- og efnahagsráðuneytisns á þeim breytingum sem gerðar hafa verið á síðusta áratug. Hann segir að ljóst megi vera af svörum ráðuneytisins að skattkerfisbreytingarnar hafi lækkað skatta bæði á heimili og fyrirtæki og aukið ráðstöfunartekjur heimilanna. Þá sýni gögnin að sú aukning sé hlutfallslega mest hjá tekjulægri heimilum. Í frétt í gær úr efni greinarinnar er í því samhengi nefnt að í ár sé innheimta tekjuskatts af einstaklingum 61 milljarði lægri en var árið 2013 þegar Bjarni tók við embætti fjármála- og efnahagsráðherra, það jafngildir um 5 milljörðum lægri skattheimtu tekjuskatts af einstaklingum á mánuði þetta árið. Uppsafnað á tímabili Bjarna í ráðuneytinu hefur innheimta tekjuskatts verið 333 milljörðum lægri en miðað við óbreytt tekjuskattskerfi.

Svarið er ekki tæmandi um alla þá skatta sem hafa verið lækkaðir eða afnumdir. Kemur fram í svarinu að ekki séu teknar með breytingar sem hafi mjög lítil tekjuáhrif og ekki heldur breytingar á krónutölugjöldum nema þær hafi breyst að raunvirði til hækkunar og lækkunar. Eins eru veiðigjöld ekki meðtalin né skattfrjáls úttekt séreignarsparnaðar vegna íbúðakaupa. Þá séu tímabundnir skattar sem ekki voru framlengdir undanskildir, s.s. auðlegðarskattur sem féll niður árið 2015. Tekjuáhrifin af honum fyrir ríkissjóð eru metin á 10,7 milljarða á verðlagi ársins. Eins var orkuskattur felldur niður ári síðar sem lækkaði skattbyrðina um 2,2 milljarða.

Þá segir Óli Björn ráðuneytið benda á í sínu svari að skattar hafi hagræn áhrif á ákvarðanir heimila og fyrirtækja og þar með á hinar ýmsu hagstærðir, þar með talið skattstofnana sjálfa.

„Það er virki­lega ánægju­legt að sjá þenn­an skiln­ing sem mér finnst oft vanta í umræðu um skatta. Þannig geta tekj­ur rík­is­sjóðs hækkað þótt skatt­hlut­fall sé lækkað vegna auk­inna um­svifa. Þá geta tekj­ur af öðrum skött­um hækkað þótt tekj­ur af öðrum lækki vegna breyt­inga á skatt­hlut­föll­um. Dæmi um þetta er aukn­ar tekj­ur af virðis­auka­skatti vegna lækk­un­ar tekju­skatts,“ segir Óli Björn.

Hann segir að hversu mikil hækkunin sé fari eftir aðstæðum á hverjum tíma og á jaðarneysluhneigð. Svipað megi sega um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu á byggingarstað. Jákvætt samhengi sé á milli endurgreiðsluhlutfalls og tekna ríkissjóðs af öðrum skattstofnum, eins og tryggingagjaldi og tekjuskatti.

150 millj­arða lækk­un

Á meðfylgjandi mynd sést að tekjur ríkisins af virðisaukaskatti er yfir 24 milljörðum hærri en ef kerfið hefði verið óbreytt frá 2012.

„Neðra þrep virðis­auk­ans var hækkað, efra þrepið lækkað og skatt­stofn­inn breikkaður. Ávinn­ing­ur rík­is­sjóðs er veru­leg­ur sam­kvæmt áætl­un­um. Á móti kem­ur afnám al­mennra vöru­gjalda og niður­fell­ing flestra tolla, að und­an­skild­um land­búnaðar­vör­um, sem talið er að leiði til 20 millj­arða lægri skatta á þessu ári. Uppsöfnuð áhrif af niður­fell­ingu vöru­gjalda og tolla eru um 150 millj­arðar á tíma­bil­inu. Áhrif virðis­auka­skatts­breyt­inga eru liðlega 163 millj­arðar,“ segir Óli Björn.

Óli Björn nefnir kolefnisgjöld og umhverfisskatta sem hafa hækkað til að styðja við sett markmið í loftslagsmálum.

„Ég hef haft tölu­verðar efa­semd­ir um ágæti kol­efn­is­gjalds­ins. Vís­bend­ing­ar eru um að gjaldið legg­ist mis­jafn­lega þungt á at­vinnu­grein­ar sem og launa­fólk. Um­hverf­is­skatt­ar, svo­kallaðir græn­ir skatt­ar, kunna að vera skyn­sam­leg­ir. Hætt­an er sú að þeir verði skjól fyr­ir aukna skatt­heimtu og hafi neikvæð áhrif á sam­keppn­is­hæfni þjóðar­inn­ar. Þessu til viðbót­ar hef­ur verið varað við því að græn­ir skatt­ar legg­ist hlut­falls­lega þyngra á þá sem lægstu tekj­urn­ar hafa. Um­hverf­is­skatt­ar geta því aukið efna­hags­leg­an ójöfnuð,“ segir hann.

Þá nefnir hann fjármálamarkaðinn sem hafi þurft að bera byrðar á síðustu árum. Hann nefnir að uppsafnaðar skattabreytingar á fjármálamarkaðinn frá 2013 nemi liðlega 176 milljörðum króna og muni þar langmestu um bankaskattinn. Skatturinn hafi verið lagður á árið 2011 og hækkaður verulega í stjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Það hafi verið gert ekki síst til að fjármagna umfangsmiklar leiðréttingar verðtryggðra húsnæðislána. Alþingi hafi svo samþykkt í lok árs 2019 að lækka bankaskattinn í áföngum til ársins 2024.

„Lækk­un­in styður við stefnu rík­is­stjórn­ar­inn­ar um að auka skil­virkni í fjár­mála­kerf­inu og lækka kostnað neyt­enda. Banka­skatt­ur­inn skilaði alls um 147 millj­örðum króna frá 2013 til 2023,“ segir Óli Björn.

Bönd á skattagleðina

Óli Björn segir að því verði illa mótmælt að frá árinu 2013 hafi töluvert áunnist í að hemja skattagleði ríkisins.

„Árang­ur­inn blas­ir við þegar rýnt er í tölu­leg­ar upp­lýs­ing­ar. En jafn­vel þótt flest skref­in sem stig­in hafa verið síðasta ára­tug­inn séu í rétta átt, stend­ur sú staðreynd óhögguð að Ísland er háskatta­land í alþjóðleg­um sam­an­b­urði. Ég hef verið óþreyt­andi við að benda á að skatt­byrði launa­fólks og fyr­ir­tækja hafi bæði áhrif á sam­keppn­is­hæfni þjóðar­inn­ar og á lífs­kjör,“ segir hann.

Hann segir Bjarna Benediktsson skilja eftir góðan vegvísi eftir rúman áratug í fjármálaráðuneytinu. Þann vegvísi muni þeir stjórnmálamenn sem líta á einstaklinga og fyrirtæki sem tekjuhlaðborð ekki nota.

„Við hin skilj­um að hóf­semd í skatt­heimtu og öðrum álög­um skil­ar sí­fellt aukn­um tekj­um í rík­is­sjóð þar sem ýtt er und­ir efna­hags­starf­semi. Þær auknu tekj­ur eru for­senda þess að sótt verði áfram fram í upp­bygg­ingu vel­ferðar­kerf­is­ins og mik­il­vægra sam­fé­lags­legra og efna­hags­legra innviða,“ segir hann.

Hér má finna grein Óla Björns í heild sinni.

Hér má finna frétt um sama efni frá því í gær.+