Fólk ætti að hafa frelsi til að elska og vera elskað

„Við höfum aldrei í mannkynssögunni verið jafn háð hvort öðru eða þurft að reiða okkur jafn mikið á hvort annað. Vandamál sköpuð af fáum geta haft skelfilegar afleiðingar fyrir aðra. Hatursfull orðræða sem notuð er í pólitískum tilgangi í einu ríki getur borist með ljóshraða yfir landamæri og eitrað þjóðfélagsumræðuna í öðrum ríkjum. En það eru líka aðrir og meira upplífgandi þættir sem fylgja þessum veruleika. Lausnir uppgötvaðar í hvaða fjarlæga svæði heims er hægt að flytja og nýta um heim allan á augabragði. Nýjar hugmyndir í menningu, vísindum og pólitískri hugsun virða heldur engin landamæri,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra meðal annars í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þann 23. september sl.

Mikilvægi þess standa vörð um gildi Sameinuðu þjóðanna, fjölþjóðasamstarf, mannréttindi og frelsi einstaklingsins var leiðarstefið í ræðu ráðherra sem finna má í heild sinni hér. Eins má sjá hana í spilaranum hér fyrir neðan. Ástand mannréttinda í Afganistan og Íran, réttindi hinsegin fólks og innrásarstríð Rússlands í Úkraínu voru á meðal helstu umræðuefna ræðunnar.

Þórdís Kolbrún benti m.a. á þá staðreynd að í sífellt tengdari heimi væri fjölþjóðasamstarf  í alvarlegri tilvistarkreppu. „Ég tel okkur standa á mikilvægum tímamótum. Þegar við lítum til baka á þennan tíma — eftir 30 ár — þá munum við annað hvort líta til baka með sorg og skelfingu yfir stórslysum sem hefði verið hægt að forðast, eða við munum muna stund styrkleikans, þegar alþjóðakerfið sannaði að það gæti staðist sínar erfiðustu prófraunir án þess að bresta,“ sagði hún.

Þá voru mannréttindamál fyrirferðarmikil í ræðu ráðherra. Nefndi hún m.a. ástand mannréttindamála í Afganista og Íran sem dæmi um alvarlegt bakslag í réttindabaráttu hinsegin fólks víða um heim.

„Af öllu því sem fólk velur að hafa áhyggjur af – get ég einfaldlega aldrei skilið hvers vegna fólk ætti ekki að hafa frelsi til að elska og vera elskað eins og það er,“ sagði Þórdís Kolbrún.

„Víða um heim er fólki refsað fyrir skoðanir sínar og fyrir að ögra yfirvöldum. Víða er verið að grafa undan borgaralegu samfélagi, fjölmiðlum og tjáningafrelsi, ekki aðeins í einræðisríkjum, heldur um allan heim. Tilfellum þar sem fólk er handtekið af geðþótta af stjórnvöldum fer fjölgandi og er gríðarlegt áhyggjuefni. Við erum að horfa upp á hættulega þróun og hnignun lýðræðislegra gilda og borgaralegra réttinda, oft undir forystu popúlískra stjórnmálamanna sem bjóða upp á einfaldar lausnir við flóknum vandamálum. Þeir dreifa tortryggni, röngum upplýsingum og ýta undir skautun í samfélögum sínum. Þetta gera þeir í krafti sömu mannréttinda og þeir eru að grafa undan,“ sagði Þórdís Kolbrún.

Sjá nánar í frétt á vef utanríkisráðuneytisins hér.