Þegar gefur á bátinn

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík:

Á vordögum við afgreiðslu ársreiknings, sem sýndi nær sextán milljarða hallarekstur, sagði borgarstjóri gríðarlegan viðsnúning framundan í rekstri borgarinnar. Oddviti Framsóknar boðaði aðgerðir, nú skyldi tekið í hornin á rekstrinum.

Það var því fróðlegt að líta þriggja mánaða uppgjör borgarsjóðs á dögunum. Þar birtist rekstrarniðurstaða sem reyndist nær tveimur milljörðum lakari en áætlanir borgarstjóra gáfu til kynna. Þegar sex mánaða uppgjör fyrirtækja og félaga í eigu Reykjavíkurborgar eru svo skoðuð málast upp sífellt dekkri mynd af fjármálum borgarinnar.

Um margra ára skeið hefur rekstur borgarsjóðs stigversnað. Áhrif dóttur- og hlutdeildarfélaga borgarinnar hafa hins vegar gert meirihlutanum kleift að klappa sér á bakið fyrir rekstrarafrek við erfiðar aðstæður. Hækkandi álverð á heimsmörkuðum og sprenging í húsnæðisverði áranna 2020 til 2022 reyndust helstu ástæður þess að samstæða Reykjavíkuborgar skilaði jákvæðri niðurstöðu – jafnvel þó rekstur borgarinnar hafi í reynd farið versnandi með hverju árshlutauppgjörinu.

Nú gefur hins vegar á bátinn. Samkvæmt fjárhagsáætlun borgarinnar átti samstæða borgarinnar að skila ríflega átta milljarða afgangi á árinu 2023. Var það ekki síst vegna væntrar afkomu tveggja stærstu dótturfélaga borgarinnar, Félagsbústaða og Orkuveitu Reykjavíkur. Samkvæmt fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir árið 2023 átti matsbreyting á fjárfestingaeignum Félagsbústaða að skila tæpum 7,6 milljörðum króna á yfirstandandi ári. Reyndin er sú að á fyrstu sex mánuðum ársins nemur matsbreyting á eignum Félagsbústaða um 580 milljónum króna.

Að sama skapi var áætluð afkoma Orkuveitu Reykjavíkur á árinu 2023 ríflega 13,3 milljarðar króna. Reyndin er sú að Orkuveita Reykjavíkur tapaði 795 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Til að bíta höfuðuð af skömm ámælisverðrar áæltanagerðar meirihlutans voru verðbólguforsendur ársins 2023 4,9 prósent. Nú er ljóst að sú forsenda er strax fallin um sjálfa sig.

Ekki nema til komi sprenging í húsnæðisverði á Íslandi, rokhækkun í alþjóðlegu álverði og hraður samdráttur í innlendri verðbólgu (óháð því hversu ósamrýmanlegir þessir þrír þættir eru), þá er augljóst að rekstur borgarinnar verður mörgum milljörðum lakari en fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir. Sé einungis litið til Félagsbústaða og Orkuveitunnar vantar um það bil 10 milljarða upp á að áætlanir samstæðu borgarinnar gangi eftir.

Ekki er boðlegt að kvarta undan verðbólgu umfram væntingar. Að styðjast við verðbólguspá sem var gefin út í júnílok 2022 er í besta falli vanþekking og í versta falli einbeittur vilji til að blekkja kjósendur.

Nú má ljóst vera að hvorki verður af þeim viðsnúningi sem borgarstjóri lofaði – né heldur þeim aðgerðum sem tilvonandi borgarstjóri boðaði. Þá er ekki síður ljóst að ekki verður tekið í hornin á rekstrinum, fyrr en tekið hefur verið í hornin á meirihlutanum.

Greinin birtist á Vísi 1. september 2023.