Frelsi og um­burðar­lyndi

Friðjón R. Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík:

Á morgun, laugardag, fögnum við og styðjum réttindabaráttu hinsegin fólks. Borgarfulltrúar sem velja að taka þátt, munu ganga undir yfirskriftinni Reykjavík er stolt, rétt eins og í fyrra. Borgarfulltrúarnir munu með þátttöku í göngunni, hvar sem þeir eru í flokki, taka undir þær áherslur sem borgin setur um að sýna samstöðu og stuðning við trans fólk og hinsegin fræðslu í skóla- og frístundastarfi borgarinnar.

Fyrir okkur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins fellur slíkur stuðningur sérstaklega vel að ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins síðasta vetur þar sem við tókum fram að við viljum áfram vera í fararbroddi þeirra sem vilja tryggja mannréttindi og auka réttindi hinsegin fólks. Við tókum líka fram að þarft sé að stíga áfram skref sem tryggja jöfn réttindi og jafna stöðu hinsegin fólks. Stjórnvöld þurfi að móta sér heildstæða stefnu í málefnum hinsegin fólks, í samstarfi við samtök þeirra og sérstaklega verði skoðað að styrkja stöðu hinsegin fjölskyldna, einkum með tilliti til ættleiðinga, skráningar og sjálfkrafa viðurkenningar samkynja foreldra og að setja þurfi skýra stefnu um hinsegin fólk í leit að alþjóðlegri vernd.

Þá ályktaði landsfundur að Ísland sé, og eigi ávallt að vera, í fararbroddi þegar kemur að réttindum hinsegin fólks. Að lokum var samþykkt á einum fjölmennasta landsfundi síðari ára, að fólki eigi að vera frjálst að skilgreina kyn sitt að vild.

Fólki á að vera frjálst að skilgreina kyn sitt að vild er setning sem fellur sérstaklega vel að grunngildum Sjálfstæðisflokksins, sem eru frelsi og trú á einstaklinginn. Það eru 94 ár síðan Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður og þessi grunngildi hafa ávallt verið hluti af stefnu okkar. Nokkuð sem okkur öllum sem gegna trúnaðarstöðum fyrir Sjálfstæðisflokksinn er vert að muna og við eigum líka að nota tækifærið og minna fólk á, sama hvar það stendur, á hvaða grunni við stöndum. Sjálfstæðisstefnan er umburðarlynd og bjartsýn fyrir þjóðina og við í Sjálfstæðisflokknum stöndum með öllum einstaklingum óháð skoðunum, óháð trú og óháð kynhneigð.

Fyrir mér er frelsið grunnstef allra mannréttinda og á að vera mælikvarði allra athafna okkar sem gegna opinberum hlutverkum. Það á við í smáu sem stóru. Það er holur hljómur í orðum þeirra sem segjast styðja mannréttindi og frelsi en bæta svo alltaf við að nú sé ekki rétti tíminn, að aðstæður hér á landi séu sérstakar eða hlutirnir hafi nú bara alltaf verið svona og óþarfi sé að breyta.

Réttindabarátta hinsegin fólks er frelsisbarátta, hún snýst um frelsi til að elska og frelsi til að vera. Þess vegna er það stefna Sjálfstæðisflokksins að styðja við hinsegin fólk, nú og til framtíðar.

Greinin birtist í Vísi 11. ágúst 2023.