Bjarni

Þjóðarsjóður myndi nýtast vel í áföllum

„Ef að rík­is­sjóður fer skyndi­lega í halla af því að það verður afla­brest­ur, alþjóðaflug­vell­ir lokast eða ein­hver önn­ur meiri­hátt­ar rösk­un á sér stað – þá þarf rík­is­sjóður að taka lán á þeim tíma sem vext­irn­ir hækka,“ seg­ir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra í viðtali í Þjóðmálum og bendir á að þjóðarsjóður gæti létt mjög á ríkissjóði í slíkum aðstæðum, en frumvarp þess efnis er í undirbúningi.

Þjóðarsjóður yrði varasjóður sem hægt væri að grípa í þegar efnahagslegir erfiðleikar kæmu upp. Sjóðurinn fengi framlög af arði ríkisins af m.a. orkuvinnslu.

Bjarni segir að nauðsynlegt sé að skuldahlutföll hins opinbera þurfi að vera lág og ríkið þurfi að hafa borð fyrir báru þegar eitthvað brestur á. Hann hafi í þessu sambandi talað fyrir þjóðarsjóð.

„Það er það sem við höf­um séð núna. Við höf­um þurft að taka lán á meðan rík­is­sjóður er í halla, á allt öðrum kjör­um en átti við áður en heims­far­ald­ur skall á. Þá hefði verið mjög gott að eiga fyr­ir út­gjöld­un­um í ein­hvers kon­ar áfalla­vara­sjóði og koma út úr krepp­unni miklu skulda­lægri. Og þegar krepp­an er yf­ir­staðin og vext­irn­ir komn­ir aft­ur niður, þá get­ur [rík­is­sjóður] end­ur­fjármagnað sig og lækkað vaxta­byrðina,“ segir Bjarni

Bjarni var spurður út í hættuna á því að stjórnmálamenn gangi að óþörfu í slíkan sjóð og nýti hann í önnur verkefni.

„Það þarf að hugsa fyr­ir því, að hon­um sé ekki spreðað í ein­hver slíka mál,“ seg­ir Bjarni og ennfremur: „Þú get­ur sagt það sama með alla hluti, eins og skatta. Við sjá­um skína í það nú þegar að Sam­fylk­ing­in tal­ar fyr­ir aukn­um rík­is­út­gjöld­um á grund­velli þess að skatt­ar verði hækkaðir.“

Í hlaðvarpsþættinum er rætt við Bjarna um margt fleira, s.s. ríkisstjórnarsamstarfið, málefni hælisleitanda, helstu áskoranir framundan á vettvangi íslenskra stjórnmála, um möguleiga sölu á ríkisfyrirtækjum o.fl.

Þáttinn í heild sinni má finna hér.