Sendiráði Íslands í Moskvu lokað 1. ágúst

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra hefur ákveðið að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu frá 1. ágúst næstkomandi. Sendiherra Rússlands var tilkynnt um þessa ákvörðun í dag.

Á þeim fundi var honum jafnframt tjáð að gert sé ráð fyrir að Rússar lækki fyrirsvar sitt á Íslandi og að sendiherra stýri ekki lengur sendiráði Rússlands í Reykjavík. Rússlandi hefur verið gert að lágmarka starfsemi sendiráðsins á Íslandi til samræmis við þessa ákvörðun.

Í frétt á vef ráðuneytisins segir að ákvörðun um að leggja niður starfsemi sendiráðsins hafi verið tekin í ljósi þess að það samræmist ekki forgangsröðun í utanríkisþjónustu Íslands að starfrækja sendiskrifstofu í Moskvu við núverandi aðstæður.

„Ísland starfrækir átján sendiráð í höfuðborgum erlendra ríkja, einkum í ríkjum þar sem efnahagsleg, stjórnmálaleg og menningarleg tengsl eru mikil eða um samstarfsríki í þróunarsamvinnu er að ræða.

Öll samskipti við Rússland eru í lágmarki hvort sem litið er til viðskiptalegra, menningarlegra eða stjórnmálalegra tengsla. Forsendur fyrir starfsemi sendiráðs í Moskvu eru því gjörbreyttar.

Ísland hefur rekið sendiráð í Moskvu frá árinu 1944 að undanskildum árunum 1951-1953 þegar viðskipti lágu niðri milli ríkjanna. Sovétríkin höfðu ekki sendiherra á Íslandi á árunum 1948-1954,“ segir í fréttinni.

Þá segir jafnframt að ákvörðun um að leggja niður starfsemi sendiráðsins feli ekki í sér slit á stjórnmálasambandi ríkjanna. Um leið og aðstæður leyfi verði lögð áhersla á að hefja starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu á ný.