Bjarni

Sama gamla pólitíkin um hærri skatta og meiri útgjöld

„Það kom mér spánskt fyrir sjónir þegar ég heyrði Kristrúnu Frostadóttur segja í gær að Samfylkingin hefði haft það sem viðmið í ríkisfjármálum að „gera ekki tillögu um eina krónu í útgjöld án þess að tvær komi á móti til að vinna gegn verðbólgu.“

Við afgreiðslu fjárlaga 2023 gerði Samfylkingin tillögu um 9 milljarða ný útgjöld. Samkvæmt þessu viðmiði, sem sagt er að Samfylkingin fylgi, hefðu átt að koma tillögur um 18 milljarða nýjar tekjur og afkoman þá orðið 9 milljörðum betri,“ sagði Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra á facebook-síðu sinni í gær.

„Það ætti að vera nokkuð óumdeilt að 9 milljarða betri afkoma er tæplega til þess fallin að breyta miklu um raunverulegt aðhaldsstig ríkisfjármálanna. Í því sambandi má geta þess að afkoma ríkissjóðs stefnir nú í að verða 90 milljörðum betri á árinu en áður var gert ráð fyrir.

En hvað sem því líður þá gerði Samfylkingin enga tillögu um 9 milljarða betri afkomu. Afkomubatinn samkvæmt tillögunni sem Kristrún sjálf mælti fyrir átti að vera 4 milljarðar eða innan við helmingur af þessu yfirlýsta viðmiði. Sú fjárhæð hefði sannarlega engin áhrif haft á aðhaldsstigið,“ sagði Bjarni og einnig: „Í reynd var þetta því gamla pólitíkin um hærri skatta og meiri útgjöld, sama gamla Samfylkingin – stærra ríki og auknar tilfærslur. Pólitík sem engu raunverulegu hefði skilað í baráttunni við verðbólguna.“