Óheilindi hverra?

Ragnar Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð:

Málefni Reykjavíkurflugvallar hafa lengi verið í brennidepli. Af þeim sökum hefur margt verið sagt og samþykkt varðandi framtíð flugvallarins. Samhljómur hefur verið  í andstöðu þeirra   sem búa fjær höfuðborgarsvæðinu, við ógnun á flugöryggi og lokun flugbrauta. Það er brýnt hagsmuna- og öryggismál allra, en sérstaklega íbúa á landsbyggðinni. Því eru skiljanleg hávær mótmæli landsbyggðar vegna áformaðra framkvæmda í Skerjafirði sem auka  óvissu um notagildi flugvallarins.

Hrópandi þögn

Hrópandi þögn margra sveitarstjórnarmanna Framsóknar er mikið stílbrot gagnvart þessum samhljómi sem hingað til hefur ríkt. Það kemur því spánskt fyrir sjónir að sjá þingmenn og ráðherra Framsóknar saka fyrrum liðsfélaga sína og aðra sem látið hafa áhyggjur sínar í ljós í flugvallarmálinu, um ósannindi, óheilindi og gífuryrði án þess að færa rök fyrir. Sannleikurinn er einfaldlega sá að fyrirhuguð uppbygging gengur gegn því samkomulagi sem gert var árið 2019 til að tryggja rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar þar til nýr flugvöllur sé tilbúin til notkunar.

Það ætti að vera óþarfi að rifja hér hér upp að Framsókn í Reykjavík bauð fram lista kenndan við flugvallarvini.

Staðreyndirnar

„Ráð­herra mun því hvorki geta fall­ist á að farið verði í umræddar fram­kvæmdir í Skerja­firði né aðrar slíkar fram­kvæmdir í næsta nágrenni við flug­völl­inn nema sýnt hafi verið með óyggj­andi hætti fram á að flug­ör­yggi og rekstr­ar­ör­yggi sé ekki stefnt í hætt­u.“ Þetta sagði  núverandi innviðaráðherra á síðasta  ári við skriflegri fyrirspurn á þingi um það hvort hann myndi beita sér gegn frekari byggð í Skerjafirði.

Í niðurstöðu starfs­hóps sem sjálfur innviðaráðherra skipaði til að meta áhrif á flug- og rekstr­arör­yggi Reykja­vík­ur­flug­vall­ar kemur fram að ný byggð í Skerjaf­irði mun að óbreyttu þrengja að og skerða not­hæfi Reykja­vík­ur­flug­vall­ar vegna breyt­inga á vindafari. Á blaðsíðu 38 í skýrslunni er að finna helstu niðurstöður:

  • Byggð í Nýja Skerjafirði samkvæmt fyrirliggjandi skipulagi þrengir að starfsemi flugvallarins frá því sem nú er, breytingar verða á vindafari á flugvellinum og í næsta nágrenni hans og nothæfi hans skerðist.
  • Þar sem meðalvindhraðabreyting fer nú þegar yfir viðmiðunarmörk þarf að gæta sérstakrar varúðar við að bæta við fleiri áhættuþáttum svo sem aukinni kviku. Ljóst er af þeim gögnum og úttektum sem fyrir liggja að kvika eykst yfir flugvallarsvæðinu með tilkomu Nýja Skerjafjarðar samkvæmt fyrirliggjandi skipulagi. Mun ítarlegri greiningu og mælingar vantar til að meta hve mikil þessi breyting verður.
  • Ekki er hægt að fullyrða, án frekari rannsókna, að byggðin hafi slík áhrif á aðstæður fyrir flug á Reykjavíkurflugvelli að þörf sé á að hætta við byggingarhugmyndir í Nýja Skerjafirði.

Mótvægisaðgerðir óljósar

Síðan er í skýrslunni farið yfir mögulegar mótvægisaðgerðir sem til þess eru fallnar að „draga úr áhrifum eða áhættu“ en koma ekki að fullu í veg fyrir neikvæð áhrif byggðar á flugrekstraröryggi hans. Mótvægisaðgerðirnar eru valfrjálsar, óljósar og matskenndar.

Í lokaorðum skýrslunnar segir „ vert að geta þess að það er og verður ákvörðunaratriði stjórnvalda, rekstraraðila og notenda flugvallarins hvort og þá hvaða skerðing nothæfis er ásættanleg fyrir flugið á Reykjavíkurflugvelli.“  Mitt svar er einfalt. Ég tel óásættanlegt að skerða enn frekar nothæfi flugvallarins þar til annar betri eða sambærilegur kostur fyrir innanlandsflug hefur leyst núverandi flugvöll af hólmi. Þessi skýra afstaða hefur  ekkert breyst. Hverra eru þá óheilindin í þessu máli?

Greinin birtist fyrst á Vísi 7. maí 2023